Hér er

Vefhönnunin þín

VIÐ BJÓÐUM UPP Á

Heimasíðugerð

Falleg hönnun grípur augað. Þetta vitum við og því eru kröfurnar okkar háar, þegar kemur að því að hanna fallegar heimasíður.
Við heimasíðugerð leggjum mikinn metnað í að hanna vefsíður sem eru stílhreinar, einfaldar og notandavænar. Við vitum að það skiptir meginmáli við að laða fram jákvæða ímynd af fyrirtækinu þínu. Vefheimar eru í stöðugri þróun og það skiptir því okkur miklu máli að fylgjast með öllu því nýja sem kemur á markaðinn varðandi heimasíðugerð.

Vefhönnun
Vefhönnun
Vantar þig

Fallega netverslun

Aðlaðandi, notendavæn og aðgengileg netverslun dregur að sér viðskiptavini. Þess vegna skiptir miklu máli hvaða upplifun grípur gesti sem koma inn á vefinn. Á sama hátt og við viljum að verslunin okkar taki fagnandi á móti viðskiptavinum sem ganga inn, þá viljum við að sjálfsögðu að netverslunin okkar bjóði þá velkomna þegar þeir koma inn á verslunarsvæðið okkar.

Ferli

Vefhönnunar

Þarfagreining

Fyrst er farið í þarfagreiningu. Hvað er það sem vefurinn á að gera fyrir viðskiptavin.

Uppsetning á grind

Við setjum upp grindina (Wirefram) sem er í raun leiðarkerfi vefsins

áttu lén – fyrirtæki.is

Ef fyrirtæki á ekki sitt eigið lén, þá getum við séð um að kaupa það.

efni í tölvutæku formi

Við byrjum ekki að setja upp vefinn fyrr en við fáum efnið til okkar í tölvutæku formi.

hönnun og þróun

Það gerist oft að þegar efnið er komið til okkar, þá þarf að aðlaga vefinn að einhverju leyti.

hýsing og þjónusta

Við bjóðum upp á að hýsa vefi fyrir viðskiptavini ef þeir hafa áhuga á því. Þá er líka hægt að fá okkur til að sjá um uppfærslur.

Vefhönnun
Hvað þýðir þetta ferli

VIÐ UPPSETNINGU Á VEFSÍÐU

Er ekki nóg að skella sér bara í það að henda upp vef. Því það sannast alltaf aftur og aftur að ef við gerum bara eitthvað, þá fáum við bara eitthvað. Aftur á móti ef við vitum hvað við erum að fara að gera, þá verða hlutirnir markvissari og skilvirkari.

Þarfagreining er ferli þar sem við finnum út hvað það er sem viðskiptavinurinn vill og hvað það er sem hann þarf. Það er ekki endilega alltaf sami hluturinn. Í framhaldi af því setjum við upp grind af útliti vefsins – oft kallað Wireframe. Það er útlit vefsins án lita, texta og mynda. Það má líkja þessu við að listmálari byrjar á að gera blýantsuppkast áður en hann byrjar á verkinu sjálfu.

Flest fyrirtæki en ekki þó öll eiga sitt eigið lén, það er fyrirtæki.is. Það er eitthvað sem er nauðsynlegt að eiga ef fyrirtæki ætla að markaðssetja sig á internetinu. Við getum tekið að okkur að kaupa lén og sjá um hýsingu á því.

Svo er það

UPPSETNINGIN

Við þurfum að fá allt efnið í tölvutæku formi, tilbúið til innsetningar á vefinn, nema samið sé um annað í upphafi. Sömuleiðis er alltaf spurning hvort að við eigum að taka að okkur að sjá um myndefnið eða hvort við fáum það tilbúið frá viðskiptavini.

Þegar efnið hefur svo skilað sér til okkar, er farið í að hanna og þróa vefinn út frá grindinni sem var samþykkt af viðskiptavininum. Þegar viðskiptavinurinn er orðinn sáttur, er heimasíðunni skilað til hans.

Í framhaldi þarf að hýsa vefsíðuna einhvers staðar og þar getum við líka verið til staðar. Við bjóðum upp á hýsingu á vefþjónum sem sérstaklega eru skilgreindir fyrir WordPress vefumsjónarkerfið, sem við vinnum mest í.

Einnig þarf í framhaldinu að sjá um uppfærslur á vefsíðunni, setja inn efni, halda utan um samfélagsmiðlana, vinna fréttabréf og fleira.

Þar kemur inn þjónustan okkar sem heitir Stafrænn aðstoðarmaður. Hún hentar mörgum fyrirtækjum og eru viðskiptavinirnir okkar mjög ánægðir með þessa þjónustu og nýta hana óspart.

Vefhönnun
Viðskiptavinir

Hvað segja viðskiptavinirnir

5 star rating
5 star rating
5 star rating
5 star rating
5 star rating
„Félag eldri borgara í Hafnarfirði lýsir yfir mikilli ánægju með samstarf við Vefskjól. Fyrirtækið hefur séð um uppbyggingu heimasíðu félagsins febh.is og samtengt hana við samfélagsmila. Síðurnar hafa vakið athygli fyrir fagmennsku. Við höfum komið öllum upplýsingum á framfæri þegar við þurfum þar sem þjónustulund Lilju og Stefáns er einstök.“
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Formaður félags eldri borgara í Hafnarfirði
5 star rating
5 star rating
5 star rating
5 star rating
5 star rating
Ég hef verið viðskitavinur hjá Vefskjól undanfarin 10 ár. Á þeim tíma hafa þau hannað þrjár heimasíður fyrir mitt fyrirtæki, þau hýsa síðurnar mínar, eru vefstjórar og eru stafrænir aðstoðarmenn mínir. Í öll þessi ár hafa þau alltaf boðið upp fljóta, góða og persónulega þjónustu. Leyst öll mín vandamál ef þau koma upp, hratt og vel. Gott að vinna með þeim í að hanna síður, þau taka óskum og hugmyndum vel og ná alltaf að útfæra þær hugmyndir sem ég óska eftir.
Öll samvinna og þjónusta til fyrirmyndar, ég mæli 100% með Vefskjól.
GUÐRÚN JÓHANNA BENEDIKTSDÓTTIR
Eigandi / iðjuþjálfi – Lífsbrunnur ehf